text


text

text

text


text

Húsasmiðjan hf.
BYKO hf.
Íbúðalánasjóður
Íslandsbanki
Símaskráin
Akureyrarbær
Samtök atvinnulífsins
Samtök iðnaðarin

Staðlaráð

Veður

text




Raðhús við Furulund Akureyri
Húslýsing

text

Almennt:
Verktakafyrirtækið P. Alfreðsson ehf. hyggst reisa fjögur fjögurra til sex íbúða raðhús með samtals tuttugu íbúðum fyrir Eignarhaldsfélagið Hlaðir ehf. á reit sem er 10.650 m2 að heildarflatarmáli og afmarkast af Furulundi að sunnan, fyrirhuguðum Miðhúsavegi að vestan og Þingvallastræti að norðan.

Ágúst Hafsteinsson arkitekt og Árni Árnason innanhússarkitekt á Arkitektastofunni Form ehf. sáu um hönnun byggðarinnar. Mikil áhersla hefur verið lögð á glæsilega hönnun jafnframt því að viðhaldskostnaður húsnæðisins verði í algjöru lágmarki. Í þeim tilgangi eru m.a. útihurðir og gluggar úr áli/tré og húsið einangrað utan og klætt með stálklæðningu og múrhúðað í lit td. Stó-kerfi. Einnig hefur verið lögð mikil áhersla á að nota vistvæn og heilsusamleg byggingarefni eins og kostur er.

text

Grunnhugmyndin byggir á því að mynda litla notalega þyrpingu lágreistra og fallegra húsa utan um sameiginlegan garð og leiksvæði.
Allar íbúðirnar hafa góða yfirsýn yfir leiksvæðið. Hverri íbúð fylgir skýrt afmörkuð einkalóð. Um er að ræða tvær íbúðastærðir, annars vegar tíu þriggja herbergja íbúðir með bílskúr og hins vegar tíu fjögurra herbergja íbúðir með bílskúr

text

Húslýsing:
Húsin eru steinsteypt, einangruð og pússuð og klædd með stálklæðningu að utan. Þak er klætt með þakdúk og bárustáli. Gluggar og hurðir eru úr ál/timbri til þess að lágmarka viðhald.
Allar inni- og útihurðir eru 90 sm breiðar, auk þess sem íbúðirnar eru hannaðar þannig að þær geti hentað sem flestum þjóðfélagshópum.

Frágangur íbúðar:
Gólf.
Gólf í íbúðum verða rykbundin en gólf á baðherbergjum verða flísalögð og fullfrágengin. Önnur gólfefni fylgja ekki nema að beiðni kaupenda.

Veggir.
Allir steyptir veggir verða sandsparslaðir og málaðir í ljósum lit.
Léttir innveggir eru úr stálgrind,  klæddir tvöföldu 13mm. gifsi, sparslaðir og málaðir í ljósum lit.

Loft.
Steypt plata er yfir íbúðum nema stofu þar sem loftið er tekið upp og er trébitaloft. Einangrað er ofan á steyptu plötuna, en á milli burðarbita í stofu. Steypt plata verður sandspörsluð og máluð í ljósum lit. Loft í stofu verður einangrað, klætt rakavarnrlagi settar upp lektur, en óklætt að öðru leyti.

Baðherbergi.
‘I baðherbergi verður gólf og tveir veggir við sturtu flísalagðir upp í 2m. hæð með flísum af gerðinni td. Pavigres eða samsvarandi. Hreinlætistæki verða af viðurkenndri gerð td. Ifö eða Gústafsberg. Sturta verður sett upp og físalagður niðurtekinn sturtubotn, en glerveggir kringum sturtu fylgja ekki.

Svefnherbergi.
‘I öll svefnherbergi koma fataskápar með fatahengi og útdraganlegum fatakörfum og hillum en í efri skápum verða hillur. Sjónvarps og símatenglar verða í öllum herbergjum.

Innréttingar.
Eldhúsinnréttingar og fataskápar verða smíðaðir úr hvítum plasthúðuðum spónaplötum en hurðir og skúffuforstykki verða spónlögð. Bekkplötur verða úr formbeygðu harðplasti með hamraðri áferð. Skúffubrautir, hengsli og höldur verða af viðurkenndri og vandaðri gerð. ‘I eldhúsinnréttingum er helluborð, bakarofn og vaskur. Gert er ráð fyrir plássi fyrir örbylgjuofni og uppþvottavél, en þau tæki fylgja ekki.
‘I þvottahús kemur skolvaskur í borðplötu.
Sólbekkir verða formbeygðir með hamraðri áferð, festir á vinkla með 2cm. bili milli veggs og sólbekks til að hindra ekki hitastreymi frá ofnum.
Innihurðir verða þýskar yfirfelldar hurðir af gerðinni td. Moralt.
Allur spónn á innréttingum og innihurðum verður eyk, en kaupendum þó gefinn kostur á að velja aðra viðartegund, enda greiði hann mismun á verði ef um hann er að ræða.

Bílageymsla:
Vönduð bílkeyrsluhurð er fyrir hverri bílgeymslu ásamt sjálfstæðri gönguhurð. Veggir verða holufylltir og rykbundnir með málningu, gólf verða vélpússuð og grunnmáluð.

Upphitun:
Íbúðirnar eru hitaðar upp með vatnsofnum sem staðsettir eru undir gluggum, rörakerfi verður rör í rör kerfi (PEX). ‘I baðherbergjum eru handklæðaofnar og hiti er í baðherbergisgólfum.

Raflögn:
Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn stað. Útilýsing er yfir inngangs- og svalarhurðum og við bílskúrshurðir ásamt því að lagt er fyrir ljósapollum við gangstíg en lýsingu  er stjórnað af ljósnemum sem stjórna lýsingartíma, þannig að lýsing á svæðinu verði jöfn.

Einkalóðir:
Einkalóð hverrar íbúðar verður jöfnuð, þökulagt í fleti og malbikuð bílastæði framan við hverja bílgeymslu og með steinsteyptri stétt að aðalinngangi. Lagt verður fyrir snjóbræðslu  undir bílastæðum og  steinsteyptri stétt frá gangstétt að aðalinngangi.  Tengigrind fyrir sjóbræðsluna fylgir ekki.   Skipt verður um jarðveg fyrir útipöllum við allar íbúðirnar. Runnar og gróður í beðum fylgja ekki.

Frágangur sameiginlegs útisvæðis:
Gangstéttar og götur innan svæðisins verða malbikaðar og fullfrágengnar með kantsteinum og tilheyrandi. Miðsvæði/leiksvæði er skilað þökulögðu og er gert ráð fyrir fjölbreytilegum gróðri til að skapa vistlegt og hlýlegt umhverfi.


text text Til baka