![]() ![]() ![]() Byggingar.is
|
|
|||||||||||||||||||
|
Fyrirtækið P. Alfreðsson ehf. á rætur sínar að rekja til ársins 1990, þegar eigandi þess, Páll Alfreðsson, réð til sín 3 smiði og hóf rekstur á sinni persónulegu kennitölu. Fyrstu árin voru einungis 3 - 4 starfsmenn og fyrirtækið var einungis að sinna smærri verkefnum s.s. viðhaldsverkefnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Stærstu viðhaldsverk Páls á þessum tíma voru fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Útgerðarfélag Akureyringa þar sem fyrirtækið tók að sér flest viðhald á eignum sjúkrahússins og Útgerðarfélagsins. Í framhaldi af þessu komu inn verkefni hjá fleiri aðilum s.s. Landsvirkjun hf., Akureyrarbæ og Kaupfélagi Eyfirðinga. Starfsemi Páls jókst jafnt og þétt og árið 1995 var hann kominn með 8 smiði og 1 verkamann í vinnu. Byggingaverktakafyrirtækið P. Alfreðsson ehf. var stofnað í desember 1996, og hafði þá í upphafi 10 starfsmenn. Ákveðið var að víkka verksvið og auka umsvif fyrirtækisins á þann hátt að fara einnig út í nýsmíði hvers konar og nýbyggingar. Snemma árs 1997 var fjárfest í trésmíðaverkstæði að Draupnisgötu 7m og farið var að bjóða í framkvæmdir við smíði nýbygginga. Þá um vorið bauð fyrirtækið í smíði hafnarhúss fyrir Hafnarsamlag Eyjafjarðar og fékk það verk fyrir ásamt því að tilboði fyrirtækisins í byggingu innisundlaugar á Kristnesi í Eyjafirði var tekið. Það verk var unnið fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Ásamt því að vinna við nýbyggingar var fyrirtækið enn að sinna þjónustusamningum fyrir Fjórðungssjúkrahúsið og Útgerðarfélagið sem og öðrum verkefnum. Um mitt ár 1999 var farið að huga að frekari framkvæmdum, og sótt var um lóðir við Mýrarveg á Akureyri þar sem fyrirhugað var að reisa 2 bokkir fyrir aldraða. Í lok sama árs var grunnurinn að þeim báðum tekinn. Um vorið 2000 var hafist handa við byggingu leikskóla á vegum Akureyrarbæjar og um miðbik það sama ár voru hafnar framkvæmdir við 1.655 m2 verslunarhúsnæði fyrir Hymir ehf. og leigt Baugi hf. undir Bónusverslun. Í júní 2001 var tekið tilboði fyrirtækisins í að reisa 9. og 10. áfanga Verkmenntaskólans á Akureyri sem á að hýsa hússtjórnar- og rafeindasvið skólans. Verkið er um 1.200 m2 bygging sem á að afhenta um mitt ár 2003. Í september 2002 var byrjað á 11 raðhúsaíbúðum af 20 sem eiga að rísa í Furulundi (norðan Mjólkursamlags). Íbúðirnar er 3-4 herbergja íbúðir á 1 hæð með innbyggðum bílskúr. Lagt hefur verið mikið upp úr hönnun húsanna og reynt að hafa umhverfi þeirra eins fjölskylduvænt og unt er. Í dag starfa um 40 manns hjá P. Alfreðsson ehf. þar af eru 25 faglærðir smiðir, 3 nemar og 10 verkamenn auk fjölda undirverktaka. Velta og umfang fyrirtækisins hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár. P. Alfreðsson ehf. á fyrirtækið Eignarhaldsfélagið Hlaðir ehf. Það fyrirtæki er, eins og nafnið gefur til kynna, eignarhaldsfélag sem P. Alfreðsson ehf. byggir íbúðir fyrir en Hlaðir ehf. leigir svo út eða selur. Einnig á P. Alfreðsson ehf. 31% hlut í fyrirtækinu Hymir ehf. sem er eignarhaldsfyrirtæki sem á og leigir út atvinnuhúsnæði. Hymir ehf. á m.a. Langholt 1 sem er verslunarhúsnæði sem leigt er af Baugi hf. og Skipagötu 12, 18 og Kaupvangsstræti 4, þar sem er skrifstofu- og verslunarhúsnæði og veitingastaður. Um áramótin 2004-2005 var nafni P. Alfreðssonar ehf breytt í P.A. byggingarverktaki ehf. og annað félag stofnað sem heitir P. Alfreðsson eignarhaldsfélag ehf. Það félag á nú P.A. bygingarverktaka ehf., Eignarhaldsfélagið Hlaðir ehf. og 31% hlut í HYMIR ehf.. |
||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||