![]() ![]() ![]() Húsasmiðjan hf. BYKO hf. Íbúðalánasjóður Íslandsbanki Símaskráin Akureyrarbær Samtök atvinnulífsins Samtök iðnaðarin |
|
|||||||||||||||||||
Íbúðir fyrir aldraða við Mýraveg 111-113 Húslýsing Almennt: Á lóðinni eru tvö fimmtán íbúða 5 hæða hús sérhönnuð fyrir þarfir eldri borgara og hreyfihamlaðra. Í byggingarskilmálum er kvöð um lágmarksaldur eigenda, 55 ár. Mikil áhersla hefur verið lögð á glæsilega hönnun jafnframt því að viðhaldskostnaður húsnæðisins verði í algjöru lágmarki. Í þeim tilgangi eru m.a. útihurðir og gluggar úr tré-áli og húsið steinsteypt einangrað utan og klætt með lituðum stálpanelað að hluta og múrhúðað og málað að hluta. Einnig hefur verið lögð mikil áhersla á að nota vistvæn og heilsusamleg byggingarefni eins og kostur er. Kjallari er undir húsunum og er þar meðal annars bílageymsla með einu bílastæði fyrir hverja íbúð. Vönduð lyfta af viðurkenndri gerð liggur frá kjallara upp á allar hæðir. Stigahús, svokallað öryggisstigahús með stálstiga og óupphitað, liggur frá kjallara og upp á hæðir. Burðarvirki hússins er steypt en innveggir íbúðar eru gifsplötuveggir en innveggir í kjallara eru annað hvort hlaðnir úr gjallsteini eða spónaplötuveggir. Íbúðirnar afhendast tilbúnar með frágenginni lóð, bílageymslu og sérgeymslu í kjallara fyrir 3ja herbergja íbúðirnar. Íbúðunum fylgja annað hvort rúmgóðar svalir eða útivistarsvæði á jarðhæð og fullfrágengin bílastæði á lóð Í húsinu verður sjálfvirkt eldviðvörunarkerfi tengt stjórnstöð og möguleiki er á tengingu öryggiskerfis fyrir hverja íbúð Lóð: Lóð verður fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum hellulagðri stétt með snjóbræðslu frá gangstétt að aðalinngangi. Snjóbræðslukerfi er einnig í aðkeyrslubraut að bílakjallara. Útivistarsvæði fyrir íbúðir á jarðhæð verða hellulögð. Stígar innan lóðar verða malarbornir. Gert er ráð fyrir fjölbreytilegum gróðri til að skapa vistlegt og hlýlegt umhverfi. Frágangur íbúðar: Baðherbergi verður flísalagt en. íbúðin verður að öðru leyti án gólfefna. (Gólf íbúðanna verða að öðru leyti vélpússuð og grunnmáluð.) Eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápar verða úr maghony. Bekkplötur og sólbekkir verða úr formbeygðu harðplasti með hamraðri áferð. Flísalagt verður milli bekkjar og efri skápa í eldhúsi. Í 3ja herbergja íbúðum fylgir helluborð og ofn og tvískiptur vaskur, en í 2ja herbergja íbúðunum fylgir eldavél með ofni og einfaldur vaskur. Öll eldhústæki, sem fylgja íbúð verða af vandaðri og viðurkenndri gerð. Í öllum eldhúsinnréttingum er gert ráð fyrir plássi fyrir örbylgjuofn og uppþvottavél. Í þvottahúsi verður stálvaskur í borði og plasthúðaðar hillur verða í þvottahúsi og geymslum í íbúðunum. Í baðherbergjum verða tveir veggir við sturtu flísalagðir upp í 2 m hæð. Gert er ráð fyrir sturtu á baðherbergjum. Vélrænt útsog er frá geymslum, þvottahúsi, eldhúsum og baðherbergjum í 2ja herbergja íbúðunum. Innihurðir og fatahengi í forstofum verða úr maghony. Innveggir íbúða eru gifsplötuveggir, þ.e.a.s. veggir úr stálgrind með einangrun á milli og klæðningu úr gifsplötum. Veggir og loft íbúða verða sandspörsluð og máluð. Geymslur í kjallara: Í kjallara eru sérgeymslur fyrir allar 3ja herbergja íbúðirnar en engar inréttingar verða í sérgeymslum. Milliveggir í geymslum verða úr spónaplötum og hurðir verða málaðar. Gólf verða lökkuð og veggir og loft máluð. Vélrænt útsog er frá geymslum. Frágangur sameignar: Forstofugólf við aðalinngang í húsið verður flísalagt en veggir og loft íbúðaganga í sameign verða máluð og gólf lagt vinyl-gólfdúk. Í kjallara er sameiginleg hjólageymsla ásamt sorpgeymslu, ræstiherbergi og inntaksrými. Veggir í kjallara verða málaðir, gólf lökkuð og innréttingar í sorp- og ræstiherbergi fylgja. Bílageymsla: Stæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð og því fylgir fjarstýring fyrir opnunarbúnað bílgeymsluhurðar. Veggir verða holufylltir og rykbundnir með málningu, gólf malbikað og hljóðdeyfiplötur verða í lofti. Vélrænt útsog verður í bílageymslu. Raflögn: Öll raflögn er frágengin þ.e. tengt í allar dósir of rofar komnir á sinn stað og öll ljós í sameign uppsett. |
||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||